Alexandra Jóhannesdóttir ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Alexandra Jóhannesdóttir hefur verið valin til að taka við starfi bæjarstjóra Suðurnesjabæjar. Gert er ráð fyrir að bæjarstjórn staðfesti ráðninguna á fundi sínum þann 15. júlí nk. Alls bárust 26 umsóknir um starfið en tveir umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka.
Alexandra hefur undanfarin átta ár gegnt starfi sveitar- og hafnarstjóra á Skagaströnd. Á þeim tíma hefur hún leitt fjölbreytt verkefni á sviði stjórnsýslu, rekstrar og uppbyggingar sveitarfélagsins og öðlast víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum og rekstri hafna.
Hún hefur jafnframt sinnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum á landsvísu. Þar má nefna starf hennar sem framkvæmdastjóri félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu, formaður Almannavarnarnefndar Austur-Húnavatnssýslu, varaformaður Samgönguráðs og varaformaður Hafnasambands Íslands síðustu ár.
Áður starfaði Alexandra sem lögfræðingur hjá Listahátíð í Reykjavík og Fiskistofu. Hún er með B.A.-gráðu og Mag.jur.-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.
Gert er ráð fyrir að Alexandra hefji störf í ágúst.
„Ég er afskaplega þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt með þessari ráðningu. Það eru mikil forréttindi að fá tækifæri til að leiða Suðurnesjabæ á þessum spennandi tíma í þróun sveitarfélagsins. Hér er öflugt samfélag og fjölmörg tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar. Ég hlakka til að kynnast íbúum, starfsfólki sveitarfélagsins, kjörnum fulltrúum og atvinnulífinu og vinna með þeim að því að móta sameiginlega framtíðarsýn fyrir Suðurnesjabæ,” segir Alexandra Jóhannesdóttir, verðandi bæjarstjóri Suðurnesjabæjar.
Suðurnesjabær býður Alexöndru hjartanlega velkomna í hópinn.